02febrúar

Jæja er  ekki kominn tími til að blogga smá

02. febrúar 2008 klukkan 20:23
Helga Guðmundsdóttir
2 athugasemdir
04október

HÆHÆ

Já minns er að fara á Raufarhöfn um helgina, byrja á því að keyra á Mývatn á morgun og svo á Raufarhöfn á laugardaginn. Ég og pabbi ætlum svo að keyra alla leiðina heim á laugardeginum eftir að við erum búin að kaupa hrúta því að við ætlum að smala allt heima á sunnudag. Ég nenni nú ekki að hlaupa þannig að ég ætla að fara á hestbaki, vona að rassinn á mér sé ennþá í þjálfun eftir fjallferðina, hehe....
Það verður gaman að líta yfir kindahópinn og sjá hvað er komið heim og hvort að lömbin mín séu ekki alveg gullfallegGlottandi 

Ég náði kjellinum með mér í bíó um daginn og það var í fyrsta skipti sem hann fór í Selfossbíó takk fyrir. Gaman að eiga heiðurinn að því að ná honum í bíó þangað!! hehe...

Já ætli maður verði ekki að fara að éta, blogga um hrútaferðina eftir helgi.;)
Kv. Rollustelpan Helga;)

04. október 2007 klukkan 19:12
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
19september

Já lífið getur verið ömurlegt:(

Já þá er maður ný komin heim úr útkalli. Þetta er bara hræðilegt og aumingja sonur mannsins að hafa lent í þessu.
En já pabbi, Yvonne, Sigurjón og Orri fóru á bátnum og það gekk voða illa hjá þeim þar sem það var svo grunnt og erfitt að sigla, enda er skrúfan svoldið ónýt. Þau löbbuðu mest allan tímann með blessaðan bátinn. Ég, Nesi og Davíð löbbuðum með árbakkanum og það var svoldið erfitt á köflum.
Þegar farið var að rökkva þá hættu allir bátar að leita ekki auðvelt að vera á bátum í myrkri að leita.
Já þetta er bara ömurlegt og ég samhryggist fjölskyldu mannsins innilega!

Já kannski maður fari að sofa, góða nótt og dreymi ykkur vel;)
Bæbæ Helga björgunarsveitastelpa;)
19. september 2007 klukkan 22:25
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
17september

Komiði sæl og blessuð

Já það má segja að það hafi haustað snemma í ár. Ég var að velta því fyrir mér hvort Ísland væri að verða Ísland aftur. Eeeen það var mjög gaman að sjá snjóinn á laugardaginn og við systkinin vorum mjög ánægð. Snjórinn er nú farin en ég held að það sé kominn tími til að það snjói almennilega á þessu landi. Ég vil fá SNJÓ!!!!! Það er náttla geggjað gaman að leika sér á sleðum og fara í jeppaferðir. Snjórinn gerir það líka að verkum að sumar kindur skila sér sjálfkrafa heim, sem er by the way algjör snilld.

Var að vinna um helgina og það var bara ágætt að gera þó svo að veðrið væri leiðinlegt. Fór með pabba, Nesa, Bjarka og Geira á Gömlu Borg en þar var haldið svokallað réttarpartý, það var ágæt stemming og ég held að fólkið hafi verið að tala frá sér vitið enda mikið spjallað.

Við pabbi erum búin að fá svar um að fá hrúta frá Raufarhöfn, fáum alveg heila tvo. Förum á Raufarhöfn í október held ég að skoða og sækja hrúta, mig hlakkar geggjað til. Fáum vonandi flotta hrúta en það toppar nú enginn hrútur hrútinn minn né hrútinn hennar mömmu, þeir eru náttla lang flottastir.
En það verður spennandi að sjá svo hvernig afkvæmin undan austurlensku hrútunum munu líta út.

Já nenni ekki að blogga meir þannig að ég kveð að sinni!
Kv. Helga
17. september 2007 klukkan 19:00
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
14september

Hæhæ

Já langt síðan maður hefur ritað hér inn á..
Það er nú voða lítið búið að ske hjá mér. Er byrjuð að vinna fulla vinnu í sjoppunni og það er bara asskoti fínt. Skrapp reyndar á fjall í nokkra daga og það var geggjað gaman á fjalli. Hrossin mín voru voða stillt og svona og ég tolldi á hrossunum allan tímann;) Var svoldið aum í rassinum en það maður verður bara að venjast því.
Við fengum ágætt veður á fjalli en reyndar þegar við fórum niður heiðina þá fengum við alveg æðislegt veður eða hitt og heldur, þoka og rigning enda villtust nokkrir aftur inn í Kringlumýri... segjum ekkert hverjir það voru;)
Inn í Kringlunmýri fékk ég svo heimsókn í kojuna en Sigga á Efra Apavatni kom upp í til mín því henni fannst ég vera búin að koma mér svo vel fyrir. Við sváfum tvær þarna í einhvern tíma. hehe... En hún Sigga er náttla bara snillingur og mjög hress stelpa;) 
 
Já ég nenni ekki að blogga meira, kannski maður fari að pæla í því hvort maður eigi að skreppa í Árnes!!!

Kv. fjallastelpan Helga;)
14. september 2007 klukkan 20:57
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
26júlí

Jamm jamm

Já nú er þessi vinnuvika nánast búin, bara einn dagur eftir. Ég veit ekki hvað maður gerir um helgina, ég er allavega að fara að keppa í fótbolta á morgun, Hvöt vs. Hnohni. Eeeeen maður er allavega búin að ákveða hvað maður gerir um verlsunarmannahelgina og það er auðvitað Rollan 2007 en þar er allt aðalfólkið sko;);) ooog vá verður heavy fyllerí, get ekki beðið!!!

Seinasta laugardag fór ég í bæinn með mömmu, Nesa, Einari og Bjarka á útsölurnar. Eftir þær biðum við svo eftir pabba en hann var að keyra túrista. Þegar hann kom í bæinn fórum við og fengum okkur að eta, pabbi, mamma og Bjarki fóru á Nings að éta eitthvað rusl en ég, Nesi og Einar fórum nú bara og fengum okkur alvöru pizzur ekki eitthvað kínverskt rusl.
Seinna um kvöldið fórum við ( semsagt ég, Nesi, Bjarki og Aron) til Einars Einars en þar voru einhverjir strákar. Bjarki tók svo bílinn minn á Selfoss en Nesi tók cammann hans Davíðs. Leið okkar lá svo á Tonys en þar var ball með Dalton. Það var rosa fínt og maður þekkti slatta af fólki.

Shiiiit ég get ekki beðið eftir því að fara á fjall, svoldið skondið að ég og Guðni förum bæði í fyrsta skipti núna og það á sama tíma, í fyrra þá lofaði ég Davíð að fara þannig að ég verð að standa við það....;) Shit þetta á eftir að vera geggjað gaman!

Já nenni ekki að rita meir hér þannig að ég segji bara bleeeeess!!!!
26. júlí 2007 klukkan 17:20
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
09júlí

Jáah!!

Já hvað segiði kominn tími til að blogga???;)

Það sem liðið er af þessum sumri er bara búið að vera fínt. Alltaf gott veður í vinnunni þannig að maður er orðin þokkalega brúnn. Þetta sumar ætlar alveg að verða andstæðan við seinasta sumar en þá var alltaf rigning og rok og ekki gaman í vinnunni.
Í vetur verð ég svo að vinna í sjoppunni þannig að það verður stutt að fara í vinnuna. Verð reyndar að fá frí til að fara á fjall en ég ætla á fjall þetta árið. Ég get eila bara ekki beðið að fara, því að þetta er bara stemming. Þarf reyndar að láta drífa í því að járna svo ég geti farið að þjálfa þessa fitukeppi mína tvo!! hehe;)

Um helgina var nóg að gera, fór á rúntinn á föstudagskvöldinu, Aron kom með mér í einhvern tíma og svo fór ég bara heim að sofa því að ég var að vinna upp í sjoppu á laugardeginum. Var svo almennileg við Hildi að redda þessum degi fyrir hana;) Ég er náttla svo góð í mér:) En ég bara get ekki neitað þar sem hún er bara búin að reynast mér vel.
Já allavega eftir vinnu fór ég heim að borða, græja mig og fór svo alla leið á Akranes að skemmta mér. Ég fór með Nesa, Davíð og Einari Einars. Það var bara mjög fínt á Akranesi og allt stappað af Selfyssingum.
Lentum svo tvisvar í löggunni en fyrra skiptið þá var það útaf númeraplötunni á camaronum hans Davíðs en Jóhannes fékk enga sekt þar sem hann var ekki ábyrgur fyrir þessu og Davíð var ekki með okkur þannig að það fékk enginn sekt.
Svo þegar við vorum að fara þá var Davíð svo sniðugur að henda flösku út um gluggan og löggan beint fyrir aftan okkur og stoppaði okkur auðvitað. Löggan var náttla ekki ánægð. Svo leitaði hún á okkur öllum og í bílnum, veit ekki hvað við stóðum lengi og biðum eftir því að þeir væru búnir en ég var allavega að frjósa úr kulda á meðan. En þessar löggur voru samt mjög almennilegar og kurteisar, og það er nú ekki alltaf svoleiðis.
Komum heim um 6 leytið en ég fór ekki að sofa fyrr en 7 þar sem ég var alltaf að fá sms og alltaf einhver að hringja!
Á sunnudeginum átti Einar bró auðvitað afmæli og varð pilturinn 10 ára. Það komu fullt af fólki og svo var auðvitað fullt af kökum!

Í dag er bara búið að vera gaman í vinnunni, var að slá brautirnar og svo er geggjað veður úti.

Næstu helgi er svo reunion, veit samt ekki alveg hvort ég nenni að fara, rata ekki rassgat í bænum þannig að ég hef ekki hugmynd um hvar þetta dæmi er. Nenni heldur ekki að fara ein, en ef ég fer þá ætla ég að vera í einn eða tvo tíma, nenni ekki að vera þarna mikið lengur...

En já ætli maður verði ekki að fara að ganga frá endum eða eitthvað sniðugt, annað en að hanga í tölvunni!!!!
Bæbæ
09. júlí 2007 klukkan 17:12
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
07júní

Hæbz

Já ætli maður verði ekki að koma með eitt blogg fyrst að sauðburður er nánast lokinn en það er bara ein kindaskjáta eftir. Svo eru sex heimalingar þannig að ég þarf alltaf að vakna klukkan 6 á morgnana áður en ég fer í vinnuna til að gefa þessum vitleysingum. En heimalingarnir heita Helix, Rusli, Óðinn, Týr, Freyja og Litli.
Sauðburður gekk ágætlega, samt of mikið vesen á þessum skjátum en það þurfti að aðstoða all nokkrar. Ég fékk allavega þrjá ásetninga en tvær af kindunum mínum komu með golsótta gimbur og gráa gimbur og svo fékk ég eina flekkótta í afmælisgjöf sem fer pottþétt á.

Núna er ég byrjuð að vinna á Kiðjabergi en þetta er fyrsta vikan mín og allt hefur gengið vel, mér hefur allavega ekki tekist að skemma brautavélina á fyrstu vikunni, reyndar drepur hún stundum á sér þegar maður er að slá og það er svoldið pirrandi.
Í dag voru strákarnir að kantskera glompurnar og svo komu þeir að ná í mig og zetorinn með sturtuvagninn því að það var svo mikið í skúffunni á massanum að hann prjónaði og Sævar vissi ekkert hvað væri um að vera! Aðeins of fyndið að sjá traktorinn prjóna.

Seinustu helgi fór ég í brúðkaup hjá Röggu frænku og Magga og var þetta rosa flott hjá þeim og Ragga í mjög töff kjól. Það var fullt af fólki í veislunni og hljómsveitin Eins og hinir ( með Hreim í Land og sonum sem söngvara) spiluðu fyrir dansi og var þvílík stemming.

Í sumar verður svo nóg að gera hjá mér alla virka daga nema föstudaga, á mánudögum og fimmtudögum eru fótboltaæfingar hjá Hvatarliðinu í Sunnlenskudeildinni, þriðjudögum eru svo frjálsaræfingar sem ég og Bjarki verðum með og svo á miðvikudögum eru svo auðvitað körfuboltaæfingar og ég og mamma ætlum svo að vera duglegar að fara og synda, þannig að maður hlýtur að vera í góðu fomi eftir sumarið!


Jæja ég segi þetta gott í bili! Heyrumst og sjáumst


07. júní 2007 klukkan 18:49
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd
04maí

**Nýtt vikunnar**
_____________________________________
Já það er kannski kominn tími til að blogga eitthvað.
Í dag var seinasta prófið mitt og var það í grunnteikningu. Aðeins better nú er maður bara kominn í frí í einhvern tíma en maður er nú ekkert slakur þegar sauðburður byrjar sko! En það styttist óðum í hann, reyndar eitt lamb komið svartur lítill lambakóngur!

Seinustu helgi fór ég suður í Keflavík að horfa á driftæfingu, Davíð Adams (camaro), Sigurjón (trans am), Björn Már (trans am), Dabbi tappi (camaro) og Geiri (trans am) voru sem sagt á þessari æfingu að drifta. Þeim gekk öllum bara ágætlega held ég nema Björn Már lenti í því óhappi að trans aminn (Dolla) dó. Hann var nú búinn að fara nokkra hringi áður en það kom fyrir! Svo var einn að keppa á geðveikum 18 milljóna króna porche en hann endaði nánast í gegnum eitt grindverkið sem afmarkaði brautina frá öðru svæði. Það var bara ömurlegt að sjá svona geðveikt flottan bíl skemmast en bíllinn rispaðist, beyglaðist og rúðan brotnaði. Bömmmmer.....
En allavega eftir keppnina fóru allir á American style í Hafnarfirði. Ég, Ægir, Nesi og Bjöggi þurftum að hlusta á ruglið í honum Erlingi en hann sat við sama borð og við!! Aðeins steiktur gaur;)
En þegar við vorum að fara þá var svoldið skondið að horfa á bílaröðina en hún var svona minnir mig camaro, trans am, camaro, trans am og svo eitt heavy stykki hilux, passaði ekki alveg inn í sportbílaröðina!
Þegar ég kom heim fór ég í fjárhúsið og fékk mér að borða, fór svo í sturtu og önnur föt og á Selfoss í afmælispartý hjá Davíð Adams en þar var slatti af liði.

Já snilldar helgi, en já nenni ekki að blogga meira
Sjáumst og heyrumst
Kv. Helga

04. maí 2007 klukkan 12:07
Helga Guðmundsdóttir
2 athugasemdir
11apríl

Shjat meira fylleríið!!!!

Já ég pældi mikið í því hvort að ég ætti að fara á ball og á endanum ákvað ég að skella mér! Kvöldið byrjaði þannig að Sigurjón og Davíð komu og sóttu mig og Nesa en Nesi var driver þetta kvöld á camaro! Við byrjuðum á því að fara heim til Bjössa en hann og Aron voru þar! Síðan komu Nonni, Einar Einars, Gummi, Sveppi, Trukkurinn, Dabbi K og Orri. Ég ætlaði nú ekki að drekka neitt en það endaði nú þannig að ég var á rassgatinu! Aron gaf mér bjór en hann var búinn að blanda sér og opna bjór! Síðan kom Bjössi með eplasnafs og gaf mér og Nonna staup af því og vááá var það ógeðslegt! Ég og Nonni vorum allavega sammála því! Bjössi gaf svo strákunum líka snafs og það endaði að einhverjir fóru og ældu því! En þetta snafs gerði alveg útslagið því að já ég varð blindfull! Síðan var haldið á ball, ég, Nesi, Davíð og Einar Einars fórum í camaro og á leiðinni á ballið vorum við að drekka eitthvað bland frá Einari en ég man voða lítið eftir leiðinni á Selfoss! Ég rankaði við mér fyrir utan heima hjá Davíð. hehehe;););)
Síðan fórum við á Ingólfshvol og það var ansi löng röð í miðasölunni en Einar var framalega í röðinni þannig að ég rétti honum kortið og ég borgaði fyrir mig, Einar, Aron og Davíð inn svo að við kæmumst öll inn í einu!
Það var heljarinnar stuð á ballinu og maður þekkti ansi marga. Hitti meðal annars Selmu, Fjólu, Sverri í Miðengi, Dolla og svo auðvitað Hörð frænda;) já og maður hitti fullt af fleirra fólki.
Eftir ballið ætluðu allir upp í bústað til Arons en ég nennti því nú ekki þannig að ég fór yfir til Ægis fyrir utan pulsuvagninn og fór heim að sofa og mætti þunn og ógeðsleg í vinnuna! Ooooog vá var dagurinn lengi að liða!!!!

Næstu helgi er svo skyndihjálparnámskeið hjá Tintron og svo er ég að fara á eitthvað kvennakvöld á Hótel Geysi. Þannig að það er nóg að gera næstu helgi!!!

Jæja nenni ekki að blogga meira í bili!!!
Sjáumst og heyrumst!!!!


11. apríl 2007 klukkan 18:34
Helga Guðmundsdóttir
Engin athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Helga Guðmundsdóttir
  • Staður: Grímsnes
  • Atvinna: Verslunin Borg og Golfvöllur Kiðjabergs á sumrin
  • Hjúskaparstaða: Á föstu með Aroni mínum:*;)

Auglýsing

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur